Eva bloggar






Eva
June 8th 1980  (Age 29)
Iceland
Smá um mig

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Hildur Emma

Blogg

Anna

Dóra

Eurovision-bloggið

Haukur

Ingvar

Ísi

Ísi - með kommentakerfi

Jón

Kalli

Óli

Rakel

Siggi svarti

Sunna

Thelma

Kríli

Bríet Elfarsdóttir

Bryndís Klara Birgisdóttir

Eiríkur Ingimar Hauksson

Ingunn Lind Pétursdóttir

Jón Bjarni Snorrason

Konráð Ingi Finnbogason

Silja Haraldsdóttir

Katla Björt Kristinsdóttir

Úlfhildur og Grímur

Valur Ólason

Aðrir linkar

Perez Hilton

Wikipedia

Wiktionary

Internet movie database

Tv.com

Allmusic

Flökkusagnasíðan Snopes

Crime library

Orðabók Háskólans

Orðabanki
If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



13.11.07
Hlakka til helgarinnar...

Jæja, nú er Stefán loksins kominn í feðraorlof. Það er ofsalega ljúft. Á laugardaginn er Halloweenmatarklúbburinn hjá Bimba og Hörpu og við Stefán erum að ég held búin að ákveða búningana okkar...hlakka alveg svakalega til, ég fékk svo rosalegt vatn í munninn við að heyra að Hófý gerir aftur súkkulaðiköku...eins gott að þetta er á nammidegi!


Posted at 18:25 by Eva
Skoðun  

6.11.07
Já, þetta er svona erótískur ávöxtur...

Brúðkaup Gumma og Huldu var í einu orði sagt frábært. Til hamingju, Gummi og Hulda Smile Ég skemmti mér alveg konunglega og var alveg dauð í löppunum eftir að hafa dansað alveg fram á nótt. Greyið Stefán var hins vegar alveg að drepast í öxlinni og gat varla hreyft sig.

Rakel hélt upp á afmælið sitt á laugardaginn og þar var rosalega gaman. Hún hélt reyndar bara tvisvar upp á það þetta árið og ég held hún hljóti að hafa verið veik eða eitthvað, fimm veislur eru held ég meðaltalið hjá henni.

Ég finn hins vegar að ég þarf að rækta í mér gelluna. Hef verið alveg dauð í löppunum eftir að vera í nokkra tíma á háum hælum og á bara næstum erfitt með að labba á þeim...

Dreif mig í Boot Camp í morgun í fyrsta skipti í mánuð. Það er allt of auðvelt að vera góður við sig og sofa aðeins lengur. Ég var m.a.s. búin að slökkva á vekjaranum og komin aftur upp í rúm í morgun með þá afsökun að ég þurfi að hlífa bakinu, sem er búið að vera mjög slæmt seinustu viku eða tvær. Hins vegar lofaði ég sjálfri mér um helgina að ég myndi byrja aftur í dag og ég er rosalega ánægð með að hafa drifið mig af stað; æfingin sjálf var líka mjög skemmtileg.

Heyrði það í útvarpinu um daginn að Leikbær auglýsti að starfsfólkið þar tali og skilji íslensku. Ég hef nú lent í því oftar en einu sinni að litla systir mín segist bara alls ekki skilja okkur Rakel, við tölum einhverja fornaldaríslensku og þó eru bara sjö ár á milli okkar Thelmu...í Bónus hefur víst verið talað um erótíska ávexti (Ætli banani sé einn af þeim?) og starfsfólkið fattar ekki endilega að hvort tveggja þýðir bæði.


Posted at 11:16 by Eva
Skoðun  

12.10.07
Útsvar

Stefán var að velta því fyrir sér hvort Gísli Marteinn mætir aftur til leiks fyrir Reykjavík í Útsvari eða hvort Dagur B. mætir í staðinn...

Posted at 22:35 by Eva
Skoðun  

8.10.07
Happy eyes!

Hildur Emma velti sér í fyrsta skiptið á miðvikudaginn. Amma átti áttræðisafmæli á fimmtudaginn og hélt upp á það á Grand Hótel. Á laugardaginn var svo Hulda gæsuð og það var alveg ótrúlega gaman. Ég hafði ætlað mér að skrifa eitthvað meira um þessa hluti en er bara nokkuð andlaus eins og er. Sit á afdrepi foreldra á Barnaspítalanum, en litla prinsessan þurfti snögglega að fara í aðgerð á sunnudagsmorgun. Stefán skrifaði færslu um aðdragandann og ástæðuna á heimasíðu Hildar Emmu og við ætlum að reyna að setja inn nýjar upplýsingar þegar færi gefst. Hildur Emma stendur sig annars eins og hetja og við eigum alveg voðalega góða að.


Posted at 13:09 by Eva
Skoðun/skoðanir (2)  

29.9.07
Strákastelpa

Sá innslag hjá Dr. Phil um daginn (já, ég er heima í fæðingarorlofi) sem fékk mig til að pæla aðeins. Þar var ballettkennari sem átti tvo stráka en vildi endilega eignast stelpu, sem hún gæti klætt í tútú, gefið henni barbí og kennt henni að hegða sér eins og dama. Til þess var hún tilbúin að velja kyn barnsins, sem er víst hægt í Bandaríkjunum. (A.m.k. velja fósturvísa sem eru líklegri til að vera annað hvort kynið) Ég ætla nú ekki að fara út í neitt varðandi siðfræðina sem liggur að baki því að velja kyn barns. Ég hugsaði bara með mér; hvað ef konan fer og velur kyn barnsins og eignast svo strákastelpu? Stelpu sem hefur engan áhuga á kjólum og dúkkum og vill bara fara út í fótbolta og bíló?

Posted at 22:50 by Eva
Skoðun  

Litum bæinn rauðan...

Óle, óle, óle óle...Fjölskyldan á Kleppsveginum fór á völlinn í dag, ásamt pabba og Thelmu. Gísli og Baldvin komu svo í hálfleik. Mér fannst eiginlega ekki annað hægt en að mæta á völlinn og það var ofsalega gaman að vera þarna þegar titlinum var landað. Sérstaklega ánægjulegt af því að menn voru farnir að tala um það mjög snemma í sumar að úrslitin í deildinni væru ráðin og FH-ingar væru búnir að taka þetta. Ég verð nú samt að segja að mér brá þegar talað var um fyrsta titilinn í tuttugu ár, því eitthvað man ég nú eftir því þegar Valsmenn voru meistarar. Ég man þó enn betur eftir því þegar Valur varð bikarmeistari 1990, því þá vorum við stödd í sumarbústað með KR-ingum og hlustuðum á lýsinguna í útvarpinu. Spennan var svakaleg og ég held að við höfum verið alveg gjörsamlega óþolandi eftir sigurinn... Ég man líka vel eftir leiknum 1992 en ekkert eftir leiknum 1991... Þrusustuð hins vegar að vera tvöfaldur Íslandsmeistari...

Posted at 22:32 by Eva
Skoðun  

28.9.07
Ó men...

Þessa dagana er ég svo hrikalega gleymin að ég myndi týna hausnum ef hann væri ekki fastur á. Hefur ekki tekist að gleyma nammidegi, en hef hins vegar gleymt nammi sem ég hef hlakkað mikið til að borða. Á morgun borða ég marsipanið sem ég gleymdi seinasta laugardag. Nammi namm...

Posted at 15:03 by Eva
Skoðun  

23.9.07
Bakfalls- eða hjólhestaspyrna?

Er það einhver misskilningur í mér, eða eru ekki bakfallsspyrna og hjólhestaspyrna hvor sinn hluturinn? Ég stóð nefnilega í þeirri trú að í bakfallsspyrnu falli maður aftur á bakið (eins og nafnið gefur til kynna) og lendi á bakinu en að í hjólhestaspyrnu fari maður hálfum hring lengra og lendi á maganum í grasinu...

Posted at 19:29 by Eva
Skoðun/skoðanir (5)  

Valsmenn léttir í lund...

Jæja, Valur er kominn á toppinn í bili! Oh, hvað ég vona að það haldist...verst að KR komst af botninum. Spurning hvort Hildur Emma fer ekki bará á sinn fyrsta fótboltaleik í næstu viku...

Sigmundur Davíð gerði mjög góða Einu sinni var-frétt um þátttöku Gleðibankans í Eurovision núna áðan, fulla af húmor. 


Posted at 19:24 by Eva
Skoðun  

Adrenalínrush...

Í gær fór ég á árshátíð GF. Dagskráin byrjaði korter í tíu um morguninn, en þar sem Hildur Emma átti eftir að vera lengur í pössun en nokkru sinni ákvað ég að fara frekar af stað með Hörpu og Huldu um eittleytið. Þegar við komum á Nesjavelli voru þau sem voru komin græjuð til að fara í adrenalíngarðinn. Ég hafði einmitt skotið því að Stefáni í fyrradag hvort það væri ekki líklegt að það yrði haldið þangað, og hafði í raun vonað það, þar sem mig langaði mikið að prófa hann. Okkur var skipt upp í tvo hópa og átti hópurinn sem ég var í að fara fyrstur upp staurinn. Ég ákvað að skella mér bara fyrst upp. Það var skítakuldi og nokkuð sterkar vindhviður og ég tók mér góðan tíma í að taka seinustu tvö skrefin upp á staurinn; ekki síst vegna þess að ég hef ekki alveg endurheimt liðleikann frá því fyrir fæðingu...Ég er ekki lofthrædd en ég var nú skíthrædd þegar ég tók seinustu skrefin og það spilaði inn í að ég vissi ekki alveg hvernig línurnar gripu mann ef maður dytti...

Risarólan var nottla geggjað stuð og ótrúlega gaman að prófa að vera á hvolfi. Hulda fannst mér alveg frábær, hún fór upp meira en hálfan staurinn og var ekki viss hvort hún vildi fara alla leið upp í risarólunni en lét sig hafa það og fór síðan aukaferð til að geta farið á hvolf...

Mér hefur alltaf fundist gaman að klifra og fannst því mjög gaman að fara klifurvegginn. Ég er hins vegar ekki viss um að ég hefði farið hann tvisvar ef ég hefði vitað að við ættum eftir að reyna að fara upp risastigann...það var mikið hlegið að okkur Kötu sem reyndum fyrstar að fara upp hann, en hann var mun erfiðari heldur en hann leit út fyrir að vera og fólk hló ekki eins mikið þegar það prófaði sjálft...

Það var samt svakalega gott að fara í heita sturtu og pott eftir þessa útiveru.Svo er nottla alltaf fjör þegar þessi hópur kemur saman og það var mikið hlegið við matarborðið. Skildi svo Stefán eftir og fékk far heim með Hófí og náði í prinsessuna í pössun. Hún hafði bara verið ofsalega góð, ælt yfir sjálfa sig og næstum alla aðra en drakk víst úr pelanum eins og hún hefði aldrei gert annað...


Posted at 12:22 by Eva
Skoðun  

Previous Page Next Page