Entry: Come on, come on, come on 15.11.07



Ég er svo fegin að Stefán er í orlofi í dag. Hendurnar voru teknar fyrir á æfingu í morgun og ég er alveg gjörsamlega búin. Stefán verður sko að sjá um að halda á Hildi í allan dag :) Tilfinningin eftir svona æfingu er nú samt alveg rosalega góð... Mér sýnist líka að það styttist í að ég geti farið á fullt aftur og hlaupið með og hoppað, því það gengur vel að gefa Hildi Emmu að borða og þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að missa niður brjóstamjólkina.

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments