Entry: Stuttur annáll ársins 2007 10.1.08



Árinu 2007 fylgdu bæði skin og skúrir. Ég missti eina bestu vinkonu mína. Litla frænka mín, hún Emma Katrín, var bara átta ára þegar hún dó úr krabbameini fjórum dögum áður en dóttir mín kom í heiminn. Mörgum fannst skrýtið að við Emma skyldum ná svona vel saman. Ég held bara að við höfum skilið hvor aðra. Við höfðum báðar ofsalega mikla þörf fyrir að tala og við gáfum okkur tíma til að hlusta hvor á aðra. Emma Katrín kunni alveg ógrynni af lögum og kunni textana upp á hár, jafnvel við lög sem fólki hefur þótt skrýtið að ég kunni, hvað þá hún. Ef við Stefán vissum ekki alveg hvernig við áttum að hafa ofan af fyrir henni gátum við alltaf bara beðið hana um að syngja fyrir okkur. Ég er svo fegin að hafa fengið að kynnast Emmu Katrínu. 

Hildur Emma kom svo í heiminn 20. maí og það er besti dagur lífs míns. Tilfinningin þegar hún var komin í fangið á mér var ólýsanleg. Ég held að mamma og pabbi hafi líka sett hraðamet upp á spítala eftir að hringt var í þau og þeim sagt að þau væru orðin amma og afi.

Í október þurfti Hildur Emma að fara í bráðauppskurð. Ég hef aldrei á ævinni verið jafnhrædd og þegar við vorum á leiðinni upp á spítala. Þetta gekk allt vel og virðist ekki hafa mikil áhrif á Hildi Emmu í dag, því hún er ofsalega kátt og duglegt barn.

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments