|
Dró Stefán með mér á útiæfingu í morgun. Greyið hafði ekki sofið neitt rosalega vel því hann svaf nær Hildi Emmu í nótt, hún er líklegast að taka tennur og var soldið erfið. Ég setti mér þau markmið að meika það alla æfinguna og að labba aldrei ef ég átti að hlaupa. Ég var mjög stolt af því að standa við það; sérstaklega af því að ég hleyp svo hægt að undir lokin benti einn þjálfarinn mér á styttri leið ef ég vildi (líka af því að ég anda svo hátt út af astmanum) en ég sagði nei, takk, ég vil klára eins og hinir. Tókst m.a.s. að kreista út smá endasprett undir lokin, sem ég fór bara á þrjóskunni. Heita baðið á eftir var eitt það allra besta sem ég hef farið í og ég steinsofnaði...
|