Entry: Eru ekki allir í stuði? 6.4.08



Vorfagnaður Boot Camp var á föstudaginn og ég skemmti mér konunglega. Það er orðið þónokkuð síðan ég fór á almennilegt ball og Sálin stóð alveg fyrir sínu. Orð Kötu um að vinahópurinn hefði bara elst og fitnað á þeim tíu árum sem flestir í honum hafa þekkst fóru misvel í fólk ;) Ég var hins vegar mjög stolt af því að vera með þeim seinustu heim af vinahópnum, það hefur heldur ekki gerst í mjög langan tíma...

Var vakin klukkan sjö í morgun af lítilli stelpu í alveg afskaplega góðu skapi. Ákváðum að taka hana upp í til okkar og reyna að fá hana til að lúlla aðeins á milli okkar. Hún ákvað í staðinn að það væri svaka stuð að klifra yfir okkur hálfsofandi foreldrana, svo við drifum okkur bara á fætur. Þar sem veðrið var svo ofsalega fallegt langaði mig að nýta kerruna sem við keyptum úti og prófa að labba göngustíginn eftir Sæbrautinni. Þegar við vorum lögð af stað ákváðum við svo bara að kíkja til mömmu og pabba. Eftir stutta heimsókn þar, vildum við fara aðra leið til baka og löbbuðum eftir Miklubraut, urðum svöng og fórum í Bakarameistarann, Suðurveri. Ég var mjög stolt af sjálfri mér að falla ekki í freistni, því ég fékk mér bara rúnstykki. Er soldið þreytt í bakinu eftir allt þetta labb...

   1 comments

Hulda
April 10, 2008   01:06 PM PDT
 
Svona breytist þetta með árunum... allt í einu er ég farin að fara fyrst heim... hér áður þurftu gestgjafar að sópa mér út með ruslinu undir morgun... en það var mikið stuð og mikið gaman á BC tjúttinu.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments