Entry: Zzzz 16.4.08



Stundum getur maður látið einhver smáatriði fara allt of mikið í taugarnar á sér. Ég gerði það í vinnunni í gær og viti menn, auðvitað greiðist úr því í dag. Þá finnst maður soldið asnalegt hvað maður tók hlutina mikið inn á sig...
Í gær fórum við stelpurnar í mælingu og ég er mjög ánægð, því hlutirnir virðast loksins vera farnir að ganga hjá mér. Ég er léttari, ummálið og fituprósentan minnkað og vöðvamassinn orðinn meiri. Nú verður maður bara að halda sér á réttum kili...
Við Hulda og Kata fórum svo á Vegamót eftir mælinguna og ég skemmti mér alveg konunglega þar.
Mér líkar mjög vel í vinnunni, en það er soldið erfiðara að venjast því aftur að vakna svona snemma á morgnana. Undanfarið hef ég sofnað á sófanum yfir sjónvarpinu upp úr hálftíu! Ég setti met í gær þegar ég lagðist við hliðina á Hildi Emmu þegar ég var að svæfa hana og sofnaði klukkan níu...Stefáni finnst þetta hins vegar bara besta mál...enda alltaf að reyna að fá mig til að fara fyrr að sofa

   2 comments

Addinn
May 30, 2008   11:19 PM PDT
 
Það er bara svo hann geti sett eina góða Dónamynd í tækið og strokið apanum sínum ;)
Inga Gerða
June 8, 2008   08:58 AM PDT
 
Til hamingju með afmælið, megi dagurinn verða þér ofsa ofsa huggulegur :)
Hvað með afmælisblogg? ;Þ

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments