|
Pabbi kemur heim seint í kvöld og verður fjölmennt út á völl til að sækja hann. Hann hefði að sjálfsögðu viljað vera lengur úti og fylgjast með boðsundinu en það gekk ekki að framlengja gistingu. Ég er algjörlega að rifna úr stolti af pabba enda er þetta svakalegt að synda 60 kílómetra. Fjölskyldan fylgdist saman með sundinu og það er ekkert ólíklegt að Dagrún föðursystir þurfi að lakka gólfið upp á nýtt, það var svo mikið stikað um það...Hjartað sökk næstum niður í gólf þegar fyrirsögnin krítískt birtist á vefnum og þrátt fyrir að hafa fengið símtal þar sem sagt var að nú ætti hann líklega bara sex mínútur eftir í land og staðfestingu frá einhverjum í kommentakerfinu á blogginu að honum hefði tekist þetta þorðum við ekki að fagna fyrr en við fengum símtal frá bátnum. Þá var sko öskrað! Ég hafði verið svo stressuð að ég gat varla sofið nóttina áður og lítið borðað og lappirnar lyppuðust næstum undan mér þegar pabbi var kominn yfir. Mamma er reyndar búin að benda á að pabbi hafi sagt að menn syndi þetta á 12-16 tímum og allt yfir það sé ekki sund, heldur fljóti menn bara. Pabbi var mínútu betur og ef ég þekki fjölskylduna mína rétt verður fólk fljótt að benda á það ef því finnst pabbi óhóflega montinn ;) Hér er hægt að sjá sundleiðina sem pabbi synti.
|