Eva
Náð í Ermarsundskappann
 Pabbi kemur heim seint í kvöld og verður fjölmennt út á völl til að sækja hann. Hann hefði að sjálfsögðu viljað vera lengur úti og fylgjast með boðsundinu en það gekk ekki að framlengja gistingu. Ég er algjörlega að rifna úr stolti af pabba enda er þetta svakalegt að synda 60 kílómetra. Fjölskyldan fylgdist saman með sundinu og það er ekkert ólíklegt að Dagrún föðursystir þurfi að lakka gólfið upp á nýtt, það var svo mikið stikað um það...Hjartað sökk næstum niður í gólf þegar fyrirsögnin krítískt birtist á vefnum og þrátt fyrir að hafa fengið símtal þar sem sagt var að nú ætti hann... (more)</description>
ermarsund.com
      <description>Pabbi er að synda yfir Ermarsundið núna og ég er að farast úr stressi. Sendi honum góða strauma og vonast til að hann komist yfir... 
Zzzz
 Stundum getur maður látið einhver smáatriði fara allt of mikið í taugarnar á sér. Ég gerði það í vinnunni í gær og viti menn, auðvitað greiðist úr því í dag. Þá finnst maður soldið asnalegt hvað maður tók hlutina mikið inn á sig...
Í gær fórum við stelpurnar í mælingu og ég er mjög ánægð, því hlutirnir virðast loksins vera farnir að ganga hjá mér. Ég er léttari, ummálið og fituprósentan minnkað og vöðvamassinn orðinn meiri. Nú verður maður bara að halda sér á réttum kili...
Við Hulda og Kata fórum svo á Vegamót eftir mælinguna og ég skemmti mér alveg konunglega þar. 
Mér líkar mjög vel í... (more)</description>
Eru ekki allir í stuði?
      <description>Vorfagnaður Boot Camp var á föstudaginn og ég skemmti mér konunglega. Það er orðið þónokkuð síðan ég fór á almennilegt ball og Sálin stóð alveg fyrir sínu. Orð Kötu um að vinahópurinn hefði bara elst og fitnað á þeim tíu árum sem flestir í honum hafa þekkst fóru misvel í fólk ;) Ég var hins vegar mjög stolt af því að vera með þeim seinustu heim af vinahópnum, það hefur heldur ekki gerst í mjög langan tíma...
Var vakin klukkan sjö í morgun af lítilli stelpu í alveg afskaplega góðu skapi. Ákváðum að taka hana upp í til okkar og reyna að fá hana til að lúlla aðeins á milli okkar. Hún ákvað í... (more)</description>
Boston og veikindi
      <description>Fyrir næstum tveimur vikum kom litla fjölskyldan á Kleppsveginum heim úr einu besta fríi sem ég hef farið í. Við skelltum okkur í ellefu daga ferð til Boston og það var algjört æði. Ég bjóst við því að Hildur Emma myndi kannski gráta alla leiðina í flugvélinni en mín var bara í svaka stuði; reyndar svo miklu að tvær af flugfreyjunum fengu að halda á henni. Við vorum með bílaleigubíl, svo við gátum farið í aðeins lengri ferðir og ég er rosalega fegin að bíllinn var með GPS, því annars værum við líklegast enn föst á flugvellinum; vegakerfið þarna er ekki það auðskiljanlegasta í heimi. Löbbuðum... (more)</description>
Glymur?
      <description>Nú hefur margt breyst síðan ég skrifaði síðustu bloggfærslu. 1. apríl byrja ég í nýju starfi; vinn á vefnum uppi á rúv. Það er sko ekki verra að vera á launum við að vesenast í Eurovision :) . Við Stefán drifum þess vegna í að kaupa okkur annan bíl, því við þurfum að skutlast með Hildi Emmu fram og til baka þegar ég fer að vinna. Við keyptum okkur tveggja ára gamlan Opel Astra station og erum hæstánægð með hann. Stefán kláraði svo formlega masterinn um helgina.
Við Sunna létum okkur ekki vanta í salinn á úrslit Laugardagslaganna. Ég var alveg með það á hreinu að Ho ho ho myndi vinna en... (more)</description>
...aðrir hlutar leiðarinnar greiðfærir
      <description>Ég hef oft velt því fyrir mér hvaða aular það eru sem ferðast út á land vitandi það að veðrið verður alveg hrikalega slæmt. Núna veit ég það...
Addi var búinn að leigja íbúð á Akureyri og við ætluðum að skella okkur þangað á skíði. Veðurspáin var vægast sagt ekki góð, svo ákveðið var að fara fyrr af stað en áætlað var, á tveimur Land Cruiserum. Vindurinn var svolítið sterkur en ekkert of. Efst á Holtavörðuheiði var hins vegar hált og skafrenningur. Stefán var búinn að hægja vel á ferðinni, en svo kom að því að hann hélt ekki fullri stjórn á bílnum og við snérumst og festum aftari dekkin.... (more)</description>
Fyrsta útiæfingin síðan 2006
      <description>Dró Stefán með mér á útiæfingu í morgun. Greyið hafði ekki sofið neitt rosalega vel því hann svaf nær Hildi Emmu í nótt, hún er líklegast að taka tennur og var soldið erfið. Ég setti mér þau markmið að meika það alla æfinguna og að labba aldrei ef ég átti að hlaupa. Ég var mjög stolt af því að standa við það; sérstaklega af því að ég hleyp svo hægt að undir lokin benti einn þjálfarinn mér á styttri leið ef ég vildi (líka af því að ég anda svo hátt út af astmanum) en ég sagði nei, takk, ég vil klára eins og hinir. Tókst m.a.s. að kreista út smá endasprett undir lokin, sem ég fór bara á... (more)</description>
Stuttur annáll ársins 2007
      <description>Árinu 2007 fylgdu bæði skin og skúrir. Ég missti eina bestu vinkonu mína. Litla frænka mín, hún Emma Katrín, var bara átta ára þegar hún dó úr krabbameini fjórum dögum áður en dóttir mín kom í heiminn. Mörgum fannst skrýtið að við Emma skyldum ná svona vel saman. Ég held bara að við höfum skilið hvor aðra. Við höfðum báðar ofsalega mikla þörf fyrir að tala og við gáfum okkur tíma til að hlusta hvor á aðra. Emma Katrín kunni alveg ógrynni af lögum og kunni textana upp á hár, jafnvel við lög sem fólki hefur þótt skrýtið að ég kunni, hvað þá hún. Ef við Stefán vissum ekki alveg hvernig við áttum... (more)</description>
Come on, come on, come on
      <description>Ég er svo fegin að Stefán er í orlofi í dag. Hendurnar voru teknar fyrir á æfingu í morgun og ég er alveg gjörsamlega búin. Stefán verður sko að sjá um að halda á Hildi í allan dag :) Tilfinningin eftir svona æfingu er nú samt alveg rosalega góð... Mér sýnist líka að það styttist í að ég geti farið á fullt aftur og hlaupið með og hoppað, því það gengur vel að gefa Hildi Emmu að borða og þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að missa niður brjóstamjólkina. </description>